PÓSTLISTI

Nafn:
Netfang:
Skrá á póstlista

NÁMSKEIÐ STORKSINS

Haustönn 2010

Ný námskeið komin á vefinn hjá okkur. Skráning hafin! Fjölbreytt námskeið í prjóni, hekli og bútasaumi í vetur. Sjá nánar undir námskeið.

 


Hvað þýðir “ply” á ensku eða einband, tvíband?
Breytt hugtakanotkun

 

Áður fyrr var garn spunnið í fínan þráð sem var þá einband (eða single ply á ensku). Ef óskað var eftir grófara bandi voru tveir þræðir snúnir saman eða tvinnaðir og þá var komið tvíband eða tvinnað band (2-ply). Þá skildi fólk auðveldlega að tvinnað band var fínna en þrinnað (3-ply) eða fjórfalt (4-ply).

Í dag hefur garnframleiðsla breyst mikið og fjölbreytileiki á garni aukist þannig að það á ekki lengur við að t.d. fjórfalt band (4-ply) sé alltaf af sama grófleika. Í Storkinum er hægt að kaupa garn sem er tæknilega séð einband fyrir 2-2,5 mm prjóna með 34-36 lykkjur í prjónfestu og annað sem er fyrir 10 mm prjóna og 8-10 lykkjur í prjónfestu. Gömlu viðmiðin eiga því ekki lengur við sem tilvísun í grófleika garnsins.

Þjóðverjar og Ástralir hafa þó haldið áfram að nota þetta kerfi því garn framleitt hjá þeim er gjarnan nefnt 2-fach, 4-fach, 6-fach eða 2-ply, 4-ply, 6-ply og vísa þar til grófleikans.  Bretar og Bandaríkjamenn hafa valið sér önnur kerfi. Bandaríkajmenn nota Lace, Super Fine, Fine, Light, Medium, Bulky og Super Bulky. Bretar standa okkur nær því það er meira af garni á okkar markaði sem er merkt samkvæmt þeirra kerfi. Þeir nota 4-ply, Light Weight (Baby), DK (Double Knitting), Aran, Chunky, Bulky, Super Chunky.  

Upplýsingarnar sem fylgja garni í dag eru mun ítarlegri en áður. Þar má nefna innihald garnsins, þvottaleiðbeiningar, leiðbeinandi prjónastærð, prjónfesta (lykkju- og umferðafjöldi á 10 cm miðað við uppgefna prjónastærð), þyngd og metrafjöldi. Það er því að mörgu að huga þegar garn er valið.

Senda á Facebook


Storkurinn ehf   Kjörgarði Laugavegi 59 2.hæð   101 Reykjavík    Sími 551-8258     storkurinn@storkurinn.is     Opið: Mán.-Fös. 11-18 Lau. 12-16