PÓSTLISTI

Nafn:
Netfang:
Skrá á póstlista

NÁMSKEIÐ STORKSINS

Haustönn 2010

Ný námskeið komin á vefinn hjá okkur. Skráning hafin! Fjölbreytt námskeið í prjóni, hekli og bútasaumi í vetur. Sjá nánar undir námskeið.

 


Yfirlitsmynd yfir búðina.

Velkomin á heimasíðu STORKSINS

Heimasíðan er ekki tilbúin, en hún er í vinnslu. Skráið ykkur endilega á póstlista Storksins til að fylgjast með því sem er á döfinni hjá okkur.

STORKURINN er rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í að þjóna áhugafólki um hannyrðir einkum prjón, hekl og bútasaum. Storkurinn er sannkölluð sælkeraverslun hannyrðakonunnar með úrval af garni, prjónum, bútasaumsefnum, tölum og hnöppum, hannyrðabókum, útsaumi og alls kyns fylgihlutum.

Verslunin er í hjarta Reykjavíkur í Kjörgarði á Laugavegi 59, 2. hæð.

Storkurinn ehf.
Kt. 511207-2660  Vsk.nr. 96578
Laugavegi 59 101 Reykjavík
Sími:  551 8258  Fax: 562 8252

Í STORKINUM eru haldin námskeið í prjóntækni, hekli og bútasaumi. Við leggjum áherslu á kennara með faglegan bakgrunn og mikla reynslu hver á sínu sviði. Sjá nánar undir NÁMSKEIÐ.

 

 

Að skila og skipta vörum

yfirlit yfir búðinaVið leggjum metnað í að veita eins góða þjónustu og mögulegt er í Storkinum. Þess vegna höfum við á að skipa starfsfólki með reynslu og þekkingu í prjónaskap.

Við bjóðum viðskiptavinum að taka frá garn til að tryggja að rétt lotunúmer sé til.  Geymslutíminn er 6 vikur og jafnvel lengur ef um það er samið. Ef ekki heyrist frá viðkomandi eftir átta vikur setjum við garnið aftur í sölu.

Við vitum líka að þegar garn er keypt er stundum nauðsynlegt að kaupa ríflega til að vera öruggur um að garnið dugi í flíkina sem á að prjóna. Þá er hægt að skila/skipta óáteknum hnotum/hespum sem verða afgangs.  Fram að þessu höfum við ekki farið fram á að sölukvittun sé til staðar, en vegna breyttra aðstæðna á markaði verður nú breyting á.

Þá er líka vert að benda á að það eru alltaf einhverjar breytingar á garnframleiðslu, tegundir og litir detta út á hverju ári. Því borgar sig ekki að draga að skila garni ef prjónaskapnum er lokið á annað borð.

Þá viljum við benda á að af eðlilegum ástæðum er almenna reglan er sú að ekki er hægt að skila prjónum. Hins vegar er alltaf hægt að gera undantekningu á því t.d. þegar um gjöf er að ræða. Þá er um að gera að taka það fram þegar kaupin eru gerð og fá innsigli á pokann.

Eins og áður sagði erum við til þjónustu reiðubúnar og bjóðum ykkur velkomin í Storkinn.

 

 

 

Yfirlit yfir búðina

Nýjung - Panta tíma í ráðgjöf

Það hefur verið mikið að gera undanfarið og við höfum orðið varar við það að ekki er alltaf nægilega góður tími til að þjónusta þær sem þurfa ítarlega ráðgjöf við val á uppskriftum og garni.  Því bjóðum við þeim sem ætla að leggja í stórar flíkur að panta tíma í ráðgjöf. Hentugasti tíminn er kl. 9 – 11 á morgnana (fyrir opnun) eða eftir lokun kl. 18. Þær sem hafa áhuga hafi samband við okkur. Það er engin skuldbinding fólgin í ráðgjöfinni og hún er ykkur að kostnaðarlausu.

 



Storkurinn ehf   Kjörgarði Laugavegi 59 2.hæð   101 Reykjavík    Sími 551-8258     storkurinn@storkurinn.is     Opið: Mán.-Fös. 11-18 Lau. 12-16