PÓSTLISTI

Nafn:
Netfang:
Skrá á póstlista

NÁMSKEIÐ STORKSINS

Haustönn 2010

Ný námskeið komin á vefinn hjá okkur. Skráning hafin! Fjölbreytt námskeið í prjóni, hekli og bútasaumi í vetur. Sjá nánar undir námskeið.

 


Bútasaumur

Bútasaumsklúbbur Storksins

 

Nú er komin svolítil reynsla á bútasaumsklúbbinn okkar. Við höfum fengið hrós fyrir efnisvalið og verð á efnunum er mjög hagstætt. Það er aldrei of seint að byrja og vera með. Bara eitt símtal eða tölvubréf.

Upplýsingar um klúbbinn:

Meðlimir fá sendan mánaðarlega pakka með 4 x 25 cm bútum af efni úr Rowan eða Free Spirit línu Westminster Fibers. Við erum sem stendur með efni eftir hönnuðina Kaffe Fassett, Amy Butler og Valori Wells.  Þið fáið mynstruð efni á 1.795 kr. og einlit og röndótt efni á 1.595 kr. og þá er sendingarkostnaður innifalinn.

Þær sem skrá sig í klúbbinn skuldbinda sig til að vera í honum í 3 mánuði, eftir það er hægt að segja sig úr honum hvenær sem er.

Kynningar verða skipulagðar fyrir meðlimi klúbbsins tvisvar sinnum á ári. Þá verðum við með kynningu á helstu nýjungum og kennslu í einhverju tengdu bútasaumi ykkur að kostnaðarlausu.

Ef þið ákveðið að slá til og ganga í klúbbinn þá sendið þið okkur eftirfarandi upplýsingar:

Fullt nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer, netfang.

Þá vantar okkur að auki kreditkortanúmer sem er öruggara að hringja inn í s. 551 8258.

 

 

 

Vörumerkin  okkar:

 

www.westminsterfabrics.com/   www.amybutlerdesign.com

 

 

Kaffe Fassett

www.kaffefassett.com



Storkurinn ehf   Kjörgarði Laugavegi 59 2.hæð   101 Reykjavík    Sími 551-8258     storkurinn@storkurinn.is     Opið: Mán.-Fös. 11-18 Lau. 12-16