Haustönn 2010
Ný námskeið komin á vefinn hjá okkur. Skráning hafin! Fjölbreytt námskeið í prjóni, hekli og bútasaumi í vetur. Sjá nánar undir námskeið.

Það er óhætt að segja að um þessar mundir sé prjónað og/eða heklað í hverju horni landsmanna. Sala efnis til prjóna- og hekliðju hefur tekið mikinn kipp á þessu ári og varla það heimili í landinu þar sem ekki eru stundaðar hannyrðir af þessu taginu.
Íslenska ullin er alltaf jafnvinsæl og stendur fyrir sínu. Garnið okkar frá Rowan og Debbie Bliss er ávísun á gæði og frá þeim koma bækur og blöð uppfull af spennandi prjónauppskriftum fyrir alla aldurshópa.